

Hér eru myndir teknar út um glugga á Anvenue des Gobelins þar sem hægt er að sjá hversu friðsamleg mótmælin gátu verið á þeim tíma sem fjölmiðlar heima á Íslandi voru með svolítið ýktar lýsingar á hvernig ástandið í París væri. Gunnar Þorsteinn, sendikennari Íslands hér í Paris var tekin í símaviðtal á Rúv fyrir viku síðan og þar bendir hann á að flest mótmælin færu fram mjög friðsamlega en tekur það fram að það eru alltaf einhverjir í hópi mótmæla, minnihlutinn það er að segja, sem hafa brenglaða skoðanir, áherslur allt aðrar og verða að mótmæla með hálfgerðu stríði gegn löggunni en síður ríkisstjórninni. Hér á Anvenue hafa mótmælin verið líkt og "kjötkveðjuhátiðinni" í Braselíu og allt annar móral en þann sem maður hefur orðið vitni af í fjölmiðlum.
0 Comments:
Post a Comment
<< Home