Image hosting by TinyPic

TWO 2 READ

Mbl.is - Íslenskir fjárfestar eiga nú 4,7% í Icelandair Group | BBC News - keeping vista secure

              "The advertisements are the most truthful part of a newspaper." 
                                 (Thomas Jefferson; 3. president of the US)

Tuesday, December 05, 2006

Meira um vinstrimanninn, Ségoléne Royal, og hægri flokkinn UMP (Michéle Alliot-Marie)

Það sem bloggari fékk að vita um helgina er að hún Ségoléne Royal, forsetaframbjóðnadi PS, er ekki eins og margir halda. Hún er ekki á móti samkynhneigðum "brúðkaupum" en hefur sagt í viðtölum áður, að það sé alveg sjálfsagt að þeir sem samkynhnegðir eru fengju þann kost að "gifta" sig. En það kemur núna fram, þegar hún er nú í framboði sem forsetaefni, að hún sé á móti því. Það hefur þau áhrif á hana að hún sé "tvöföld" en það er bara útaf því að það eru svo margir sem eru verulega gagnrýnir á samkynhneigð "brúðkaup", þá sérstaklega káþólíkar. Ég skil hana vel að hún verði að vera á móti eitthverju svo hún geti náð sæti forseta en svo breytt stefnu og sagst ekki vera á móti. En þannig er pólitíkin, er það ekki?



Annað sem ég frétti um helgina er að hún Michèle Alliot-Marie (MAM), varnamálaráðherra frakka, ætli að bjóða sig fram á móti M. Sarkozy þann 5. janúar en þá fara fram kosningar vegna forsetaframboð hægri flokksins UMP. Hún og Sarkozy eiga mjög gott og náið samstarf innan flokksins síns og þetta á víst að hjálpa Sarkozy, er sagt. En það verður skemmtilegt að sjá hvort þetta muni hjálpa honum. Það er nefnilega sagt að hann er einn þeirra sem vilja völd og vilja forseta sem er valda mikill. En það er skrítið, þó að MAM og Sarkozy eiga gott samstarf þá er skoðun þeirra varðandi völd forseta þverólík. MAM vill að forseti verði eins og forseti Íslands, sem sagt forseti fólksins, án valdsins sem hann er með núna. Það verður þá gott að sjá hver niðurstaða kosningana verða þann 5. janúar.




Labels: , , , , , , , , ,

Wednesday, November 29, 2006

Örstutt | Fréttir af franskri pólitík

Nicolas Sarkozy, innanríkisráðherra Frakklands, hefur að undanförnu ekki gefið blaðamönnum svör við hvort hann ætli að bjóða sig fram sem forseta á næsta ári. Á meðan Ségoléne Royal, meðlimur í vinstriflokknum "Parti Socialiste (PS) var í baráttu um forsetaframboð ásamt tvem öðrum, þeim Dominique Strauss-Kahn og Laurent Fabius, gaf hægri flokkurinn "Union pour un Mouvement Populaire (UMP)" engin skilaboð um hver þeirra ætti meiri möguleika um að verða frambjóðandi þeirra manna. En núna í vikunni var svo komið að því að franska þjóðin fengi að vita svarið.
Nicolas Sarkozy sagði á blaðamannafundi að hann verður forsetaframbjóðandi hægri flokksins UMP á næsta ári. Nú þegar vinstri menn völdu Ségoléne Royal sem frambjóðanda PS verður Sarkozy í baráttu við mikla og verulega umdeilda konu. Það er sagt að Sarkozy ætti meiri möguleika á því að ná sæti forseta Frakklands en eftir því verður að bíða og sjá hvernig Royal muni koma út í viðtölum og skoðanakönnum á næstunni við hlið Sarkozy.

Margir frakkar segja að Royal sé ein þeirra stjórnmálamanna sem sækist í sæti forseta útaf græðgi en ekki til þess að þjóna fólkinu og sé "tvöföld". Fólk úti á götu, sem ég hef spjallað við, hafa engar væntingar til Ségoléne. Stefna hennar, sem hún lagði fram, mun ekki verða mikil breyting fyrir þingið eða PS að sögn manna. Hún er einnig harður kaþólíki og hefur þá stefnu að hugmyndir um "gamla" fjölskyldumynstrið eigi að varðveita. Hún hefur sagt nei við "brúðkaup" samkynhneigða og það getur haft mikil áhrif hér í París þar sem stór hópur samkynhneigða í frakklandi búa í París. Sarkozy er einnig á móti því, að mér skyldist. En ef Ségoléne verður fyrir valinu verður hún fyrsti kvennforseti frakka og þar hefur hún mikið forskot.


Ségoléne Royal

Labels: , , , , , , , , , ,